Íslenska frisbígolfsambandið (ÍFS) var stofnað árið 2005 og er hagsmunasamband frisbígolfs á Íslandi. Sambandið leggur áherslu á að byggja upp sportið hér á landi og gefa sem flestum tækifæri á að prófa frisbígolf m.a. með því að fjölga frisbígolfvöllum, standa fyrir kynningum og námskeiðum. ÍFS stendur líka fyrir öflugu mótahaldi en haldin eru yfir 100 keppnir á hverju ári.
Stjórn ÍFS
Stjórn Íslenska frisbígolfsambandsins 2023 skipa eftirtaldir: Runólfur Helgi Jónasson formaður, Gunnar Einarsson, Svandís Halldórsdóttir, Friðrik Snær Sigurgeirsson og Daníel Gunnar Sigurðsson.
Mótanefnd ÍFS
Dagur Ammendrup
Blær Örn Ásgeirsson
Svandís Halldórsdóttir
Runólfur Helgi Jónasson
Aganefnd ÍFS
Ólafur Haraldsson
Haukur Arnar Árnason
Berglind Ásgeirsdóttir
Þú getur haft samband við Íslenska frisbígolfsambandið í gegnum netfangið okkar: folf@folf.is