Búið er að skipuleggja Íslandsbikarsmótaröð ÍFS fyrir sumarið 2022 og verður hún með töluvert breyttu sniði frá því áður sem felst aðallega í því að nú verða mótaraðirnar tvær Gull- og Silfurbikarinn. Báðar mótaraðirnar byggjast upp á 5 sjálfstæðum mótum þar sem þrjú bestu mótin gilda. Íslandsmótið verður ekki hluti af Íslandsbikarnum eins og áður var. Mótin verða getuskipt og eru keppnisflokkar eftirfarandi:
Til er einföld leið til að spila í djúpum snjó án þess að týna disknum en það felst einfaldlega í því að festa langann pakkaborða í diskinn. Þessi borði er alltaf sýnilegur og því auðvelt að finna diskinn þó að hann sé á kafi í snjó. Það fer auðvitað eftir dýpt snjósins hversu langur borðinn þarf að vera en 1-1,5 metri ætti að duga.
Hér er linkur á myndband sem sýnir hvernig best er að festa borðann án þess að hann losni. Opna myndband.
Auk þess að vera skemmtilegur leikur og glæsiileg íþrótt hefur frisbígolf fjölmarga kosti fyrir bæði einstaklingana sem það stunda og samfélagið í heild.
Ein mikilvægasta áskorun nútímasamfélags er að fá fólk, einkum yngra fólk, til að hreyfa sig meira og stunda útiveru að einhverju marki. Eins og kunnugt er hreyfir lítill minnihluti sig að því lágmarki sem talið er ráðlegt og nauðsynlegt fyrir heilsu og þroska.
Folf býður fólki á öllum aldri upp á tækifæri til fjölbreyttrar hreyfingar í leik. Hvort sem iðkendur stunda folf til skemmtunar, afþreyingar, keppni eða meðvitað til útiveru og heilsubótar fylgir hreyfingin með í öllum tilvikum. Fólk spilar braut eftir braut, kast eftir kast, oft án þess að átta sig beinlínis á því að það hafi gengið rösklega nokkra kílómetra og gert bolvindur og sjálfkrafa teygjuæfingar mörgum sinnum við að kasta og beyga sig eftir diskum.
Vinsældir frisbígolfs aukast jafnt og þétt. Sumarið 2021 fóru ríflega 50% Reykvíkinga á aldrinum 18-34 ára í folf samkvæmt könnun Gallup. Þeim fjölgar stöðugt sem stunda folf oft í viku eða oft í mánuði. Folf er iðkað allan ársins hring og tugþúsundir hafa tekið því opnum örmum.
Útivera, hreyfing og félagsskapur eru meðal fjölmargra kosta frisbígolfs sem hafa jákvæð áhrif á andlega líðan fólks. Fyrir sum er það útivistin sem heillar, tækifærið til að komast út í ferska loftið og kúpla sig frá daglegu áreiti og stressi. Fyrir öðrum er frisbígolf leið til að setja sér markmið og fá útrás við að ná þeim. Sum sjá frisbígolf sem aðferð til að koma skipulagi á óreiðu hugans og ná einbeitingu. Fyrir mörg er þetta leið til að njóta félagsskapar og tilheyra hópi með sameiginlegt áhugamál.
Allt hefur þetta jákvæð áhrif á andlega heilsu og líðan fólks. Í óformlegri könnun á vefsíðu Bandaríska frisbígolfsambandsins nefndi fólk ýmis dæmi um þau góðu áhrif sem folf hefði á andlega heilsu.
Hér eru fáein svör af fjölmörgum sem bárust:
„Hjá mér var frisbígolf leið til afþreyingar og til að hafa tíma út af fyrir mig. Nú hefur það þróast yfir í frábært tengslanet og vini um allan heim!“ – Steve G.
„Það hjálpar mér að fá útrás. Til að gleyma mér. Ég barðist við andlega erfiðleika í æsku og gerði ekkert í þeim: Frisbígolf hefur gefið mér tækifæri til að breyta slíkum hugsunum og orku í eitthvað jákvæðara. Það hefur aukið sjálfstraustið hjá mér, sem var í algeru lágmarki áður, og kennt mér svo mikið um sjálfa mig og hver ég er og hvað ég vil og það veitir mér mikla ánægju.“ – Tera B.
„Sonur minn er 12 ára. Hann uppgötvaði frisbígolf í fyrrasumar og er alveg forfallinn. Þetta er búið að vera erfitt ár hjá okkur en folfvöllurinn er hamingjustaðurinn hans. Við förum með honum 3x í viku hvernig sem viðrar.“ – Christina J.
„Ég er með geðhvörf 1 með kvíða og miklu þunglyndi … frisbígolf er það eina sem fær mig út úr húsi … auðveldar mér að eiga samskipti og hitta nýtt og spennandi fólk. Frisbígolf er, ásamt hundinum mínum, lykilástæðan fyrir því að ég skuli enn vera hér.“ – Robbie S.
Nú er haustið að renna sitt skeið og veturinn að heilsa okkur með snjó og kulda. Óþarfi er að leggja diskunum á hilluna yfir veturinn því folfvellir eru opnir allt árið og auðvelt að spila sportið ef passað er upp á hlýjan klæðnað og góðan félagsskap. Margir vellir eru nú komnir með heilsársteiga sem sanna gildi sitt vel yfir vetrartímann því ekki verða til slitfletir í jarðvegi með drullu og bleytu sem erfitt er að fóta sig í.
Við hvetjum alla til þess að spila reglulega í vetur og draga þannig vinina með í góðan göngutúr, ekki skemmir að hafa heitt kakó með á brúsa. Einnig bendum við á að stóru frisbígolffélögin standa fyrir reglulegum mótum og innanhúsæfingum sem gaman er að taka þátt í.
Nú í sumar var settur upp nýr frisbígolfvöllur í Stykkishólmi og var hann kláraður á dögunum þegar settar voru upp skilti og merkingar. Völlurinn telur níu brautir og er staðsettur á holtinu fyrir ofan íþróttavöllinn og grunnskólann. Fyrsta brautin liggur frá grunnskólanum og er kastað í átt að þjónustuhúsi tjaldsvæðis. Við hvetjum auðvitað alla íbúa að nýta sér þennan völl og prófa þessa skemmtilegu íþrótt. Einnig er komin góð ástæða fyrir fólk á ferðinni að stoppa við og taka hring.
Síðasta stórmót ársins fór fram um helgina og veðurguðirnir minntu sannarlega á sig því fyrsta haustlægðin gekk yfir síðasta keppnisdaginn. Mótið sem er minningarmót um Þorvald Þórarinsson er fimmta og síðasta mótið í Íslandsbikarsmótaröðinni. Úrslit mótsins urðu sem hér segir:
Þorramótið 2021 sigurvegarar
Opinn Meistaraflokkur (MPO) – Blær Örn Ásgeirsson
Meistaraflokkur kvenna (FPO) – María Eldey Kristínardóttir
Í gær fór fram formleg opnun á nýjum fribígolfvelli sem staðsettur er í skemmtilegum garði fyrir neðan Húnabraut (fyrir neðan sundlaugina). Það voru þau Kristín Lárusdóttir menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Blönduósbæjar og Birgir Ómarsson formaður ÍFS sem vígðu völlinn. Í framhaldi af vígslunni var haldið námskeið á vegum Frisbígolfþjónustu Akureyrar þar sem réttu handtökin voru kennd en greinilegt er að mikill áhugi er á þessum nýja velli. Við hvetjum auðvitað alla til að prófa.
Um helgina fór fram Íslandsmótið í frisbígolfi en mótið var það stærsta sem haldið hefur verið hér á landi hingað til og rúsínan í pylsuenda þessa frábæra folfsumars sem nú er að líða. Alls skráðu 144 keppendur sig til þátttöku og biðlisti var orðinn langur þegar honum var lokað. Keppt var á Gufunesvelli í alls 11 flokkum og var mikil spenna í þeim flestum fram á síðustu brautir. Í opnum meistaraflokki náði Blær Örn Ásgeirsson að verja titilinn en nýr meistari var krýndur í Meistaraflokki kvenna þegar María Eldey Kristínardóttir tryggði sér sigur eftir bráðabana.
Íslandsmeistarar 2021 í öllum flokkum
Opinn Meistaraflokkur (MPO): Blær Örn Ásgeirsson Meistaraflokkur kvenna (FPO): María Eldey Kristínardóttir Stórmeistaraflokkur 40+ (MP40): Árni Sigurjónsson Stórmeistaraflokkur 50+ (MP50): Birgir Ómarsson Almennur flokkur 1 (MA1): Kristinn Þorri Þrastarson Almennur flokkur kvenna 1 (FA1): Margrét Traustadóttir Almennur flokkur 2 (MA2): Haukur Arnarson Almennur flokkur kvenna 2 (FA2): Harpa María Reynisdóttir Almennur flokkur 3 (MA3): Ægir Tómasson Ungmennaflokkur 18 ára og yngri (MJ18): Andri Fannar Torfason Barnaflokkur 12 ára og yngri (MJ12): Ares Áki Guðbjartsson
Öflugur hópur íslenskra frisbígolfara er nú á leið á Evrópumótið í frisbígolfi (European Discgolf Championchip 2021) en mótið hefst þann 11. ágúst og er haldið í Tékklandi að þessu sinni. Halda átti mótið í fyrra en því var frestað um eitt ár vegna Covid ástandsins. Þátttakendur héldu sætum sínum frá því í fyrra en úrslit Íslandsmóts ræður mestu um val á keppendum.
Hópurinn sem fer til Tékklands er þannig skipaður:
Ungmennaflokkur 18 og yngri – MJ18 Rafael Rökkvi Freysson
Auk þess má nefna að hún Katerina Zbytovska sem margir þekkja úr Frisbígolfbúðinni mun keppa fyrir Tékkland og ferðast því með hópnum út auk þess sem Freyr Ævarsson faðir Rafaels Rökkva (og Mikaels Mána) fer einnig með og verður Rafael til aðstoðar (caddy) á mótinu. Við óskum hópnum auðvitað góðs gengis.
Aðalfundur Íslenska frisbígolfsambandsins var haldinn 8. júlí og fór fundurinn fram bæði hefðbundinn en einnig sem fjarfundur. Stjórnarbreytingar urðu þannig að Bjarni Þór Gíslason gaf ekki kost á sér áfram en í hans stað var kosin Svandís Halldórsdóttir. Fram kom að síðasta ár var mikill uppgangur í frisbígolfi hér á landi, metfjöldi valla og skv. Gallup könnun sem gerð var spiluðu um 45.000 manns íþróttinu á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri. 10 nýir vellir koma upp á þessu ári og í lok sumars verða þeir því orðnir 80 talsins.
Ný stjórn ÍFS er því þannig skipuð: Birgir Ómarsson formaður Berglind Ásgeirsdóttir gjaldkeri Gunnar Einarsson Runólfur Helgi Jónasson Svandís Halldórsdóttir