Nú þegar frábæru folfsumri er að ljúka þá tekur við skemmtilegur tími því eins og allir vita er leikur einn að spila frisbígolf allt árið. Sérstaklega á þetta við um velli með heilsársteigum og hvetjum við alla sem búa við velli sem ekki hafa þannig teiga að hafa samband við sitt sveitarfélag og óska eftir því að það sé gert.
Frisbígolffélögin eru með mikla dagskrá allan veturinn, bæði með innanhúsæfingum en einnig mótum. Kynnið ykkur endilega dagskránna og takið þátt.
Í dag var haldið fimmta og síðasta Silfurmót Íslandsbikarsins en þetta er fyrsta árið sem Íslandsbikarnum er skipt í tvær mótaraðir, Silfur og Gull. Tilgangurinn er sá að bjóða léttari mót fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í mótum eða hafa ekki tök á því að keppa í Gullmótaröðinni. Þannig eru mótin á léttari völlum eða teigum, eru 1-2 dagar í stað 2-3 og leiknar eru lágmark 18 brautir í stað 36 á Gullmótunum.
Mótin í sumar voru haldin á vellinum í Njarðvíkurskógum, Úlfljótsvatni, Selfossvelli, Háskólavellinum á Akureyri og endaði síðan á Grafarholtsvelli þar sem spilað var af hvítum og bláum teigum. Stjórn ÍFS er mjög ánægð með hvernig til tókst í sumar en tæplega 80 keppendur tóku þátt í mótaröðinni og flestir á fleiri en einu móti en þrjú af fimm bestu mótunum giltu til stiga í Íslandsbikarnum. Við þökkum öllum keppendum fyrir skemmtilegt sumar.
Úrslitin urðu sem hér segir: Almennur flokkur 2 (MA2) – Anton Erlingsson – 290 stig Almennur flokkur 3 (MA3) – Atli Baldursson – 300 stig Almennur flokkur 40 ára og eldri (MA40) – Guðmundur Sævarsson – 290 stig Almennur flokkur kvenna 2 (FA2) – Ellý Alexandra Chenery – 300 stig Ungmennaflokkur 15 ára og yngri (MJ15) – Kristófer Breki Daníelsson – 300 stig Barnaflokkur 12 ára og yngri (MJ12) – Eyvindur Páll Ólafsson – 300 stig
Um helgina var Íslandsmótið í frisbígolfi haldið í 18. sinn en nú fór mótið fram á tveimur völlum, Grafarholts- og Gufunesvelli. Fyrirkomulag mótsins var þannig að 68 bestu folfarar landsins unnu sér inn rétt til að keppa á Íslandsmótinu og var keppt í fimm flokkum. Veðrið lék við keppendur um helgina en spilað 18 brauta hringur föstudag, laugardag og sunnudag og strax ljóst að baráttan yrði hörð í öllum flokkum enda gríðarleg aukning keppenda í íþróttinni síðustu tvö árin.
Íslandsmeistari í opnum flokki síðustu þriggja ára, Blær Örn Ásgeirsson fékk verðuga keppni og mátti sætta sig að lokum við annað sætið því Ellert Georgsson spilaði frábærlega og sigraði með fimm köstum. Í kvennaflokki sigraði annað árið í röð María Eldey Kristínardóttir með nokkrum yfirburðum.
Úrslit urðu þannig: Opinn flokkur: 1. Ellert Georgsson Íslandsmeistari 153 2. Blær Örn Ásgeirsson 158 3. Mikael Máni Freysson 170
Um næstu helgi fer fram frisbígolfmót á Akureyri sem sérstaklega er ætlað þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í frisbígolfkeppnum. Mótið er sjálfstætt en samt hluti af Silfurmótaröð Íslandsbikarsins sem fer frem nú í sumar. Þannig geta allir keppt á mótinu þó þeir hafi ekki tekið þátt í öðrum Silfurmótum í sumar. Einungis þeir sem hafa keppt í Gullmótaröð ÍFS geta ekki keppt á Silfurmótunum.
Við hvetjum alla til að taka þátt um helgina en boðið er upp á 6 keppnisflokka þannig að allir ættu að finna flokk við sitt hæfi og sína getu. Keppt verður á Háskólavellinum sem er frábær völlur í miðæ Akureyrar.
Sunnudaginn 7. ágúst verður haldið sérstakt kvennamót á vegum Frisbígolffélags Reykjavíkur en mótið er hluti af alþjóðlegu átaki, Womans Global Event, sem haldið um allan heim.
Mótið er sérstaklega sniðið konum, bæði vönum og óvönum í frisbígolfi, og er boðið upp á keppni á nýja vellinum í Grafarholti en á mismunandi teigum eftir getustigi spilara auk þess sem púttleikir og ásakeppni verður í boðið fyrir keppendur. Allar konur er velkomnar og hvetjum við áhugasamar um að mæta.
Margir þekktir einstaklingar, bæði hérlendis og erlendis, eru ákafir frisbígolfspilarar. Einn af þeim skemmtilegri er norski leikarinn Kristofer Hivju en hann sló eftirminnilega í gegn sem Þórmundur Risabani í þáttunum Game of Thrones. Kristofer er ákafur folfari og tekur reglulega þátt í mótum auk þess sem hann er vinsæll gestur þar sem frisbígolfið er annarsvegar og hefur verið duglegur talsmaður sportsins.
Hér er skemmtilegt myndband þar sem hann fer yfir helstu töfra fljúgandi diska. https://fb.watch/eEabK5OgEa/
Helgina 26.-28. ágúst nk. verður Íslandsmótið haldið og nú með breyttu fyrirkomulagi eins og kynnt var í vetur. Nú þurfa bestu folfarar landsins að vinna sér inn rétt til að keppa á mótinu og gildir þar aðallega árangur á Gullmótaröð Íslandsbikarsins sem er mótaröð sem haldin hefur verið í sumar.
68 bestu spilararnir úr Gullmótaröðinni í sumar vinna sér sæti auk þess sem fyrrum Íslandsmeistarar fá einnig sjálfkrafa sæti. Einhverjar breytingar geta orðið á hópnum t.d. ef einhverjir keppendur þiggja ekki sæti sitt en fær þá sá næsti í röðinni boð um keppa.
Keppt verður á tveimur völlum, Grafarholtsvelli á föstudegi og sunnudegi og á Gufunesvelli á laugardeginum.
Hér er hægt að sjá allar upplýsingar um mótið og lista yfir þá keppendur sem hafa unnið sér inn sæti: https://discgolfmetrix.com/2259817
Áfram heldur frisbígolfvöllum að fjölga en 10 nýjir vellir verða settir upp í sumar til viðbótar við þá sem fyrir eru og er þá heildartala valla á landinu kominn upp í 92. Völlurinn á Flateyri fær líka upphalningu en hann hefur ekki verið spilhæfur í einhvern tíma. Auk þess eru tveir vellir sem stækkaðir eru úr 9 brautum í 18 og einn úr 6 í 9 brautir.
Um síðustu helgi var haldið Íslandsmót barna en það er í fyrsta sinn sem við höldum sérstakt mót fyrir yngstu folfarana. Við erum mjög ánægð með hvernig til tókst og öruggt mál að þetta verður endurtekið að ári. Hér eru nýjir íslandsmeistarar:
6 ára og yngri 1. Aron Einar Gunnarsson – 50 – Íslandsmeistari 2. Aron Ásgeirsson – 60 3. Vilhjálmur Örn Sigurðsson -70
8 ára og yngri 1. Davíð Tindri Ingason – 77 – Íslandsmeistari 2. Arnþór Ásgeirsson – 82 3. Tómas Fannar Kristinsson – 90
10 ára og yngri 1. Elías Nökkvi Óðinsson – 116 – Íslandsmeistari 2. Gunnar Gauti Gunnarsson – 119
12 ára og yngri 1. Steven Nociczski – 68 – Íslandsmeistari 2. Eyvindur Páll Ólafsson – 71 3. Birtir Ingason – 77
15 ára og yngri 1. Ares Áki Guðbjartsson – 61 – Íslandsmeistari 2. Ólafur Þór Arnórsson – 65 3. Kristófer Breki Daníelsson – 66
Nú er lokið stækkun á frisbígolfvellinum á Úlfljótsvatni sem nú er orðinn 18 brauta og gríðarlega skemmtilegur og fjölbreyttur. Þessi fyrsti völlur landsins var settur upp sumarið 2002 og er vel við hæfi að hann stækki á tuttugu ára afmæli sínu en hann er sjöundi 18 brauta völlur landsins.
Breytingin á vellinum snýr ekki aðeins að stækkun úr 10 í 18 brautir heldur eru nú færðar þær brautir sem lágu við eða inn á tjaldsvæðinu þannig að nú skarast völlurinn ekki á við aðra starfsemi á staðnum. Þrjár brautir halda sér óbreyttar frá gamla vellinum og verða núna nr. 16, 17 og 18 en auk þess eru tvær brautir sem snúast við og fá ný númer 7 og 8. Völlurinn er mjög fjölbreyttur með margvíslegum áskorunum fyrir spilara s.s. trjágöng, hæðarmun, körfu við vatnið, aðra upp á gámnum auk síðustu þriggja niður með læknum.
Þrír teigar eru á hverri braut, blár sem er erfiðastur, hvítur og svo rauður sem er léttasti teigurinn.
Við skorum á alla að heimsækja Úlfljótsvatn og prófa völlinn.