Folfarar sem hafa spilað í vetur hafa þurft að glíma við óvenjumikinn klaka á völlunum, sérstaklega á Klambratúni en sá klaki er búinn að vera vikum saman. Í samtali okkar við garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar má búast við einhverjum skemmdum á grasinu sérstaklega ef ekkert fer að hlána. Það alvarlegasta er að grasrótin skemmist því það kemur í veg fyrir að grasið nái sér á strik aftur. Við vonum bara það besta og mætum vel skóaðir í vor ef þetta fer á þennan veg.
Frisbígolf í 10 ár
Þessi skemmtilega mynd er tekin í janúar 2004 af körfu 7 á Úlfljótsvatni. Áður en við fengum alvöru körfur voru ýmsar útfærslur prófaðar m.a. var fyrsti völlurinn settur upp á Akureyri en þar voru staurar notaðir sem þurfti að hitta í. Körfurnar á Úlfljótsvatni voru síldartunnur sem sagaðar voru í tvennt en eins og sést á meðfylgjandi mynd var ekkert auðvelt að “skora” nema standa alveg við körfuna og rétta diskinn á milli keðjanna.
Áramótið 2014
Vetrarfolf
Nú er veturinn skollinn á og þá hefst skemmtilegur tími fyrir okkur folfara. Lognstillur í köldu veðri er góður tími til að spila frisbígolf og margir kostir við að spila þegar laufin eru farin af trjánum svo fremur sem hvítu diskarnir eru skildir eftir heima.
Sumarið að klárast
Nú er komið að síðasta mánaðarmótinu í sumar en septembermótið verður haldið í kvöld og hefst kl. 18 á Gufunesvelli. Einnig má minna á að Úlli ljóti 2 verður haldinn á laugardaginn kl. 14 á Úlfljótsvatnsvelli og um leið verður haldið fyrsta lengdarkeppnin hér heima. Akstur á Úlfljótsvatn tekur aðeins 40-45 mínútur.
Ótrúlegar vinsældir
Óhætt er að segja að sá hópur sem hefur staðið að uppbyggingu og kynningu á frisbígolfi hér á landi undanfarin ár sé brosandi út að eyrum þessa dagana enda aldrei fleiri spilað Folf en nú í sumar þrátt fyrir leiðindaveður og rigningar.
Völlurinn á Klambratúni á auðvitað stærstan þátt í þessum vinsældum en þetta er þriðja sumarið sem hann er opinn. Nú er spilað á þeim velli flesta daga ársins og á bestu dögunum er biðröð á fyrsta teig. Á landinu eru núna 7 vellir auk margra staða þar sem búið er að setja upp stakar körfur. Mörg sveitarfélög eru áhugasöm um að setja upp velli og því líklegt að frisbígolfvöllum fjölgi töluvert á næstu árum.
Viðræður standa núna yfir við stóru sveitarfélögin hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu og er stórn ÍFS vongóð um að einhverjir nýjir vellir verði settir upp næsta vor. Það er allavega sú áhersla sem við leggjum næstu mánuði en við teljum að nýjir vellir fjölgi spilurum mest auk þess að bjóða upp á meiri fjölbreytni, velli nær búsetu fyrir utan að minnka álagið á Klambratúnsvellinum.
Mikilvægt er að folfarar fylgist vel með þegar bæjarfélögin eru að óska eftir hugmyndum og sendi inn tillögur um folfvelli eða styðji tillögur sem fyrir eru.
Karfa í kasti – AceRace
Fyrsta mót á Akranesvelli
Í gær var haldið fyrsta formlega keppnin á nýjum velli á Akranesi og var spilað á breyttum (lengdum) teigum og þremur körfum var bætt við. Spilaðir voru tveir hringir á 9 brautum í frábæru veðri. Völlurinn er einn sá skemmtilegasti á landinu og býður uppá mikla fjölbreyttni og erfiðar brautir. Mótið heppnaðist mjög vel og mál manna að völlurinn sé frábær.
Texas scramble
Folfveður
Loksins, loksins er komið gott veður um allt land en riginingin hefur verið heldur mikil í sumar. Í góðveðrinu síðustu daga hafa folfarar tekið vel við sér og er Klambratúnsvöllurinn þétt setinn, dag sem nótt.
Það er mikið ánægjuefni að sjá hversu margir nýjir spilarar hafa bæst við í sumar en það má helst líkja þetta við sprengingu. Vinsældir Klambratúnsvallarins eru það miklar að forsvarsmenn ÍFS hafa sett á það mikla áherslu að opnaðir verði nýjir vellir hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu næsta sumar.
Vonumst allavega eftir góðveðrissumri það sem eftir er af því.