Silfurmótaröðin 2025

Silfurmótaröð Íslandsbikarsins eru fjögur frisbígolfmót sem eru haldin frá maí til júlí. Mótin verða áfram einn til tveir dagar með einum til tveimur 18 brauta hringjum. Mótaröðin er skipulögð af Íslenska frisbígolfsambandinu. Þessi mót eru bæði ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni og þeim sem eru að afla sér reynslu og þróa færni í frisbígolfi. Mótin gefa PDGA stig fyrir þá sem eru skráðir í PDGA en ekki verða PDGA stiga lágmörk fyrir þátttöku í Silfurmótaröðinni. Á mótinu er farið eftir reglum frá PDGA og því gott að kynna sér helstu reglur sem gilda í mótum.

Veitt eru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í öllum flokkum á hverju móti og eru þau verðlaun afhent í lok móts enda hvert mót sjálfstætt. Hvert sæti gefur stig til Íslandsbikarsins og verður stigalisti uppfærður eftir hvert mót. Þrjú bestu mótin gilda samkvæmt meðfylgjandi stigatöflu (hér fyrir neðan).

Heimilt er að skipta um flokk á milli móta en keppandi tekur ekki áunnin stig með sér á milli flokka og getur aðeins unnið einn flokk (þann sem telst sterkari). Keppandi í Silfurmótaröð getur fært sig yfir í Gullmótaröð ef hann hefur aldrei keppt í Gullmóti áður og áttar sig á að hann á frekar heima í Gullmótaröðinni vegna færni sem viðkomandi sýnir fram á í Silfurmóti. Stig færast ekki á milli mótaraða.

Að síðasta Silfurmótinu loknu verður veittur Íslandsbikar í hverjum flokki. Um er að ræða farandbikar sem sigurvegarar varðveita í eitt ár eða þar til næstu mótaröð lýkur. Hver keppandi getur aðeins unnið Íslandsbikar í einum flokki hvert ár og sé keppandi stigahæstur í fleiri en einum flokki telst hann sigurvegari sterkasta flokksins. Til að vinna mótaröðina þarf að keppa í lágmark 2 mótum

Mótin sem eru hluti af Íslandsbikarnum 2025 eru:
Íslandsbikarinn Silfurmót 1 24. – 25. maí – FGÁ og mótanefnd ÍFS
Íslandsbikarinn Silfurmót 2  7. – 8. júní FGA Akureyri
Íslandsbikarinn Silfurmót 3  21. – 22. júní – FGR Reykjavík
Íslandsbikarinn Silfurmót 4 19. – 20. júlí – FFS, FGR og ÍFS

14 keppnisflokkar eru í boði á Silfurmótaröðinni 2025:
Almennur flokkur kvenna 2 – FA2
Almennur flokkur 2 – MA2
Almennur flokkur kvenna 3 – FA3
Almennur flokkur 3 –  MA3
Almennur flokkur kvenna 40 ára og eldri – FA40
Almennur flokkur 40 ára og eldri – MA40 
Almennur flokkur kvenna 50 ára og eldri – FA50
Almennur flokkur 50 ára og eldri – MA50
Almennur flokkur kvenna 60 ára og eldri – FA60
Almenntur flokkur 60 ára og eldri – MA60
Barnaflokkur stúlkna 12 ára og yngri – FJ12
Barnaflokkur 12 ára og yngri –  MJ12
Ungmennaflokkur stúlkna 15 ára og yngri – FJ15
Ungmennaflokkur 15 ára og yngri – MJ15

Í aldursflokkum er miðað við fæðingarár. Til dæmis eru þeir sem verða 40 ára árið 2025 yngstir í MA40 og þeir sem verða 12 ára árið 2025 elstir í MJ12. 

Teigar
Hvítir teigar fyrir alla flokka. Mótsstjóri getur boðið upp á rauða teiga á ákveðnum völlum og fyrir ákveðna flokka ef hann metur erfiðleikastigið of mikið á hvítum teigum. Hjá kvennaflokkum er líka möguleiki að hafa blandað rauða og hvíta teiga þar sem 6 rauðir eru hámark. Vallarfyrirkomulag og reglur um bráðabana þarf að berast keppendum fyrir mót (því fyrr því betra).

Fyrirkomulag skráningar og verð
Er einfaldlega „fyrstir koma, fyrstir fá“. Athugið að skráning er auglýst á frisbígolf facebook síðunni. Þar kemur fram hvernig hægt er að hafa samband við mótsstjóra og skráningarmáti. Ef að enginn hefur skráð sig í flokk 2 vikum fyrir mót hefur mótsstjóri leyfi til að fella út flokkinn. Sunnudag helgina fyrir mót lokar skráning og þá telst skráning gild ef greitt hefur verið fyrir mótið. Verð er 3000 kr fyrir ungmennaflokka og barnaflokka og 6000 kr fyrir almenna flokka. Innifalið er undirbúningur, skipulagning og utanumhald um mótið, verðlaun fyrir efstu sætin, minjagripur, snarl og drykkir. Mótsstjóri þarf að vera með fjölda keppenda á hreinu með þessum fyrirvara til að versla það sem er innifalið og ráðstafa tíma og ráshópum á mótinu út frá skráningu.

Stigagjöf
Stigagjöf ÍFS fyrir Íslandsbikarinn er aðlagað að íslenskum keppnisfjölda og byggt á útreikningum frá þremur PDGA stigakerfum frá stórmótum erlendis. Þrjú bestu mótin af fjórum gilda og vinna keppendur sér inn stig í þeim flokkum sem þeir keppa í. Skipti keppendur um flokk fylgja stigin ekki með.

1. sæti                         100 stig
2. sæti                         90 stig
3. sæti                         81 stig
4. sæti                         72 stig
5. sæti                         64 stig
6. sæti                         56 stig
7. sæti                         49 stig
8. sæti                         42 stig
9. sæti                         36 stig
10. sæti                       30 stig
11. sæti                       25 stig
12. sæti                       20 stig
13. sæti                       16 stig
14. sæti                       12 stig
15. sæti                       9 stig
16. sæti                       6 stig
17. sæti                       4 stig
18. sæti                       2 stig
19. sæti eða neðar      1 stig

Jafntefli hjá keppendum í heildarniðurstöðu.
Ef spilarar eru jafnir að stigum þegar þrjú bestu mótin eru tekin saman, þá eru talin saman heildarstig í allri mótaröðinni og sá spilari sem er með fleiri stig vinnur.
Ef spilarar eru enn jafnir að stigum þá eru skoðaðar innbyrgðis viðureignir þessara spilara á mótaröðinni.
Ef enn er jafnt þá skal hlutkesti ráða.

Birt með fyrirvara um breytingar og innsláttarvillur.